20.12.2007 | 19:34
Gonzo mætt til rvk.
Gunnsa mætti í bæinn í gær með glæsibrag, að sjálfsögðu fögnuðum við Ólöf með henni via ÖL. Einhvern veginn þegar við þrjú hittumst eftir langan tíma vill svo verða til að staðurinn sem er byrjað á er Prikið. Stórfurðulegt þar sem ekkert af okkur fer þangað lengur, þó að á tímabili hefðum við þrjú geta verið með fasta búsetu þar. Þetta voru fagnaðar fundir miklir og mis skemmtilegar sögur rifjaðar upp, meðal annars hvernig ég á að hafa vakið Gunnsu eftir eitthvað svaka jamm.
En kvöldið var ungt og við vildum meira líf, þannig að för okkar var heitið á Ölstofuna sem var kósí. Steikt kvöld. Komst meðal annars af því að ég er með tvo lurkera á blogginu mínu sem þora ekki að kvitta, það má taka fram að hér má hver sem er tjá sig :)
Nú er bara að bíða eftir jólafríinu og hlaða batteríin.
Athugasemdir
Takk fyrir skemmtó kvöld. Okkur þykir vænt um þig
Lurkerarnir 22.12.2007 kl. 17:23
Sömuleið elskurnar mínar, ps. á ekki að taka á því í kvöld?
Kristján S. Einarsson, 22.12.2007 kl. 18:07
Ég er búin að vera heldur léleg í blogglesningunum undanfarið. Ég er a.m.k. ekki lurker. Gleðileg jól og allt það.
Kv. Kristín Á.
Kristín Á 23.12.2007 kl. 12:43
Já takk fyrir það sömuleiðis :D
Kristján S. Einarsson, 23.12.2007 kl. 16:01
Gleðileg jól Krisján og vonandi hittumst við meir í framtíðinni. Sendi þér mynd af okkur á jólaballi á Reykjalundi, við erum örugglega ekki eldri enn 2-3 ára. hehe.... reyndi að setja hana hér inn en talvan vildi ekki hlíða mér
.
Kjærar jólakveðjur úr Noregi
Guðrún Guðmunda Sigurðardóttir, 23.12.2007 kl. 21:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.